Nú eru 14 mánuðir frá því ég skrifaði síðustu (eða fyrstu) færsluna á blogginu og ég virðist hafa komist ágætlega í gegnum sófadvölina án þess að vera með bloggið mér til dægrastyttingar. Barnið bakaðist vel og ákvað að lengja sófavöl móður sinnar um góða 10 daga áður en að það kom í heiminn með látum aðfaranótt sunnudagsins 20. ágúst. Það reyndist vera önnur stúlka og hún var sko aldeilis ekki hætt að hrissta upp í tilverunni þó að meðgöngunni hafi lokið. Meira um barnið síðar.
Við fjölskyldan erum á leiðinni í ferðalag og ég ætla að reyna að skrifa aðeins um ferlið hér á blogginu. Eflaust halda einhverjir að við séum að leið í heimsreisu eða að minnsta kosti á leið í aðra heimsálfu en svo er nú aldeilis ekki. Viku ferðalag innanlands. Vika án sturtu og wifi...
No comments:
Post a Comment