Tuesday, May 16, 2017

Í fréttum er þetta helst

Þar sem ég er ófrísk, hætt að vinna og með takmarkaða hreyfigetu þá hef ég ákveðið að rifja upp gamla takta og byrja að blogga aftur. Kannski að það færi mér einhverja gleði hérna í sófadvölinni.
Í dag er ég komin 27 vikur (og 5 daga if you will..) og litla manneskjan í maganum hefur strax haft töluvert meiri áhrif á lífið en við reiknuðum með.
Ég er núna hætt að vinna og þarf að dúsa á sófanum að mestu leyti næstu 12 vikurnar. Eða allavega taka því rólega. En maður gerir bara gott úr því og fer í sund (lesist pottinn) á hverjum degi og borðar morgunmatin af sparistellinu :)



No comments:

Post a Comment